29.01.07 - 06:00
Madjid Bougherra til Charlton (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Charlton hefur gengið frá kaupunum á varnarmanninum Madjid Bougherra frá Sheffield Wednesday fyrir 2,5 milljónir punda. Bougherra var í miklum metum hjá Miðvikudagsliðinu sem vildi alls ekki sleppa kappanum en hann hefur reyndar aðeins verið hjá félaginu í átta mánuði.
Bougherra er frá Alsír og sýndu bæði Everton og Birmingham honum áhuga en hann er þriðju kaup Charlton í janúar. Áður hafði hann fengið Zheng Zhi og Ben Thatcher til sín.
Bougherra lýsti því yfir að hann væri í skýjunum með að fara til Charlton sem hann sagði að hefði sýnt sér mestan áhuga.
Bougherra lýsti því yfir að hann væri í skýjunum með að fara til Charlton sem hann sagði að hefði sýnt sér mestan áhuga.
Heimild: Sky
