Fotbolti.net
29.01.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Mohamed Kallon til AEK Aþenu (Staðfest)

Mohamed Kallon til AEK Aþenu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AEK Aþena hefur gert sex mánaða samning við framherjann Mohamed Kallon.
Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur að undanförnu leikið með AL Ittihad í Saudi-Arabíu en núna er hann á leið til Grikklands.

,,Ég er ánægður með að vera kominn til AEK Aþenu og ég ætla að gera mitt besta til að hjálpa félaginu að ná sínum markmiðum," sagði Kallon.

Kallon er frá Sierra Leone en hann hefur leikið með mörgum félögm á ferlinum, meðal annars í þrjú ár með Inter frá 2001 til 2004.

Hann hefur einnig verið á mála hjá FC Lugano, Bologna FC, Genoa CFC, Cagliari Calcio, Reggina Calcio, Vicenza Calcio og Monaco í Frakklandi svo eitthvað sé nefnt.

Heimild: Heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.