Fotbolti.net
29.01.08 - 11:03
Magnús Már Einarsson

HK semur við króatíska miðjumanninn Brajkovic (Staðfest)

Brajkovic í æfingaleik með HK.

Brajkovic í æfingaleik með HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

HK hefur samið við króatíska miðjumanninn Goran Brajkovic um að leika með liðinu næsta sumar en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Brajkovic sem er 29 ára gamall var á reynslu hjá HK um helgina og lék æfingaleik gegn Víkingi R. á laugardag og gegn Aftureldingu í gær. Hann skoraði fallegt mark og lagði upp annað gegn Víkingi og hreif forráðamenn HK.

,,Það fer ekki á milli mála að hann er góður liðsstyrkur fyrir okkur og sýndi það í þessum tveimur leikjum," sagði Valdimar Hilmarsson hjá meistaraflokksráði karla við HK-vefinn

Brajkovic hefur leikið í efstu deildum í Króatíu, Úkraínu og Slóveníu frá árinu 1998 með Rijeka í Króatíu, Arsenal Kiev í Úkraínu og Bela KRaijna í Slóveníu svo eitthhvað sé nefnt.

Hann lék á sínum tíma níu U21 árs landsleiki með Króötum og þá á hann tvo A-landsleiki að baki.

Mitja Brulc framherji og kantmaður frá Slóveníu er einnig til reynslu hjá HK þessa dagana en hann lék gegn Aftureldingu í gær og skoraði þriðja mark liðsins í 3-1 sigri.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.