29.01.08 - 11:35
Hörður Snævar Jónsson
Bjarni Þór til Twente (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Þór Viðarsson leikmaður Everton mun í dag skrifa undir samning við Twente um að vera á hjá félaginu til loka leiktíðarinnar. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun.
Bjarni Þór, sem er á tuttugusta aldursári, var til reynslu hjá Twente fyrr í janúar og þótti standa sig vel en hann lék t.a.m. með varaliði félagsins í 3-1 sigurleik gegn Quick’20 þar sem hann lagði upp tvö mörk.
Bjarni Þór er fyrirliði U21 árs landsliðs Íslendinga og var í leikmannahópi A-landsliðsins gegn Dönum í nóvember.
Í síðasta mánuði lék Bjarni Þór sinn fyrsta mótsleik með aðalliði Everton, gegn AZ Alkmaar í Evrópukeppni Félagsliða. Bjarni hefur einnig nokkrum sinnum verið í leikmannahópnum hjá aðalliði Everton en þetta var fyrsti leikur hans með liðinu.
Arnar Þór Viðarsson elsti bróðir Bjarna er samningsbundinn Twente en hann er á láni hjá De Graafschap á þessu tímabili.

Heimild: Morgunblaðið