29.01.08 - 17:09
Eyþór Ernir Oddsson
Andy Cole til Burnley á láni (Staðfest)

Andy Cole á tímum hans hjá Blackburn en hann er þarna ásamt Matt Jansen

Mynd: Getty Images

Andy Cole, framherji Sunderland, gekk í dag í raðir Burnley á láni út tímabilið.
Cole, sem er 36 ára gamall, hefur ekki náð að sanna sig hjá Sunderland frá því hann gekk til liðs við félagið í sumar frá Portsmouth og hefur aðeins byrjað þrjá leiki.
Þessi fyrrum enski landsliðsmaður er næst markahæstur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 187 mörk en hluti af þeim kom á frægu tímum hans hjá Manchester United þar sem hann spilaði einmitt með Roy Keane, núverandi þjálfara Sunderland.
,,Ég er í skýjunum yfir því að hafa fengið mann af sama stalli og Andy Cole og gæði til liðsins. Ég hef unnið í því að fá hann í smá tíma og ég er í skýjunum yfir að hafa hann. Hann mun verða gríðarlegur styrkur fyrir liðið," segir Owen Coyle þjálfari Burnley.
Burnley leikur næst gegn toppliði West Brom á laugardag og verður Cole líklega í eldlínunni í þeim leik.