29.01.08 - 19:34
Magnús Már Einarsson
Hermann Albertsson í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hermann Albertsson hefur gengið til liðs við 3.deildarlið Dalvíkur/Reynis en hann kemur til liðsins frá Víkingi Reykjavík.
Hermann sem er 24 ára gamall getur leikið bæði í vörninni og á miðjunni en hann er uppalinn hjá Dalvík.
Fyrir sumarið 2003 gekk hann til liðs við FH en á tíma sínum hjá félaginu átti hann lengi í erfiðum meiðslum og missti af mörgum leikjum vegna þeirra.
Fyrir síðastliðið sumar keypti Víkingur hann síðan og lék hann ellefu leiki með liðinu í Landsbankadeildinni.
Hermann hefur spilað fyrstu leiki Dalvíkur/Reynis í Powerademótinu í þessum mánuði og núna er búið að ganga frá félagaskiptum þannig að hann mun leika með liðinu í sumar.