29.01.09 - 15:26
Magnús Már Einarsson
Matt Derbyshire til Olympiakos (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Olympiakos hefur fengið Matt Derbyshire framherja Blackburn Rovers á láni út tímabilið.
Derbyshire kom til Grikklands í dag, fór í læknisskoðun og skrifaði undir samninginn.
Derbyshire, sem er 22 ára, er á eftir Roque Santa Cruz, Benni McCarthy og Jason Roberts í goggunarröðinni hjá Blackburn og fékk hann því leyfi til að fara á láni.
Hjá Olympiakos mun hann fylla skarðið sem Darko Kovacevic skyldi eftir sig en Derbyshire gæti leikið sinn fyrsta leik um helgina þegar að liðið mætir AEK Aþenu í grannaslag.

Heimild: Sky