Fotbolti.net
29.01.09 - 16:18
Magnús Már Einarsson

Eyþór Guðnason og Sigurður Heiðar í ÍR (Staðfest)

Eyþór Guðnason er genginn í raðir ÍR.

Eyþór Guðnason er genginn í raðir ÍR.

Canon

Mynd: Alfons Finnsson

ÍR-ingar hafa fengið Eyþór Guðnason og Sigurð Heiðar Höskuldsson til liðs við sig.
Eyþór er 32 ára gamall sóknarmaður en hann lék með Víkingi Ólafsvík í fyrstu deildinni á síðustu leiktíð.

Þar skoraði Eyþór eitt mark í 21 leik í fyrstu deildinni. Eyþór hefur lengst af á ferli sínum leikið með Njarðvík en hann lék einnig með HK árið 2005 og 2007.

Sigurður Heiðar, sem er 23 ára miðjumaður, þekkir til hjá ÍR því hann lék með liðinu 2006 og 2007. Síðastliðið sumar lék hann hins vegar með Snæfell og Augnablik í þriðju deildinni.

Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild með ÍR og geta þeir því leikið með liðinu gegn Víkingi á Reykjavíkurmótinu í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.