Fotbolti.net
29.01.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Hreinn Bergs til KR (Staðfest)

Hreinn Bergs til KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Sóknarmaðurinn ungi Hreinn Bergs er genginn til liðs við KR en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Þessi 18 ára gamli leikmaður hefur æft með KR frá því í haust og hann tók þátt í öllum æfingaleikjum meistaraflokks fyrir áramót.

Hreinn er uppalinn í HK en hann hefur leikði fimm leiki með Ými, B-liði félagsins sem leikur í 3. deildinni.

Hreinn er sonur Magnúsar Bergs sem lék með Val, Stjörnunni og Þrótti hér á landi, Borussia Dortmund og Eintracht Braunsweig (Þýskalandi), Tongeren (Belgíu) og Racing Santander (Spáni).

Þar sem að Hreinn er á nítjánda aldursári þá er hann einnig ennþá gjaldgengur í öðrum flokki.

Heimild: Heimasíða KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.