29.01.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Amine Linganzi til Blackburn (Staðfest)

Allardyce bindur vonir við Linganzi.

Mynd: Getty Images

Allardyce bindur vonir við Linganzi.

Mynd: Getty Images
Blackburn Rovers hefur samið við franska miðjumanninn Amine Linganzi.
Þessi tvítugi leikmaður kemur frítt frá St Etienne í Frakklandi en hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Blackburn.
Linganzi, sem er hávaxinn leikmaður, lék þrjá leiki með St Etienne á síðustu leiktíð en hann hefur ekkert komið við sögu hjá liðinu í vetur.
Hann heillaði aftur á móti Sam Allardyce stjóra Blackburn þegar að hann var á reynslu í desember.
Linganzi er annar miðjumaðurinn sem Blackburn fær í vikunni því að hinn tyrkneski Yildiray Basturk kom einnig frá Stuttgart í fyrradag.

Heimild: BBC