29.01.10 - 12:46
Alexander Freyr Tamimi
Eiður Smári til Tottenham á láni út tímabilið (Staðfest)

Defoe og Eiður Smári verða liðsfélagar.

Mynd: Getty Images

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Defoe og Eiður Smári verða liðsfélagar.

Mynd: Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen er genginn til liðs við Tottenham Hotspur á láni út tímabilið en Harry Redknapp knattspyrnustjóri félagsins staðfesti þetta á fréttamannafundi í hádeginu.
Redknapp greindi frá því að Eiður hafi farið í læknisskoðun í gær og nú sé allt klárt í sambandi við félagaskiptin.
Eiði hefur ekki gengið sem skyldi að fóta sig hjá franska úrvalsdeildarliðinu Monaco eftir að hann kom til þeirra frá Katelóníurisum Barcelona og gæti enska úrvalsdeildin verið kjörinn staður fyrir hann til að endurlífga ferilinn.
Eiður Smári hóf feril sinn hjá Val þar sem hann lék árið 1994 áður en hann hélt til hollenska stórliðsins PSV þar sem hann spilaði við hlið Brasilíumannsins Ronaldo. Eiður varð fyrir því óláni að ökklabrotna í landsleik með U-18 landsliði Íslands á þeim tíma og urðu þau meiðsli honum erfið. Á endanum leysti PSV hann undan samningi og gekk hann til liðs við KR á Íslandi.
Hann upplifði síðan endurnýjun lífdaga sinna þegar hann hélt til Bolton þar sem Guðni Bergsson átti mikinn þátt í því að hjálpa honum að ná sínu besta formi. Tímabilið 1999-2000 var hann í byrjunarliði Bolton í öllum leikjum liðsins nema sjö og hjálpaði hann þeim að komast í undanúrslit bikarsins og deildarbikarsins.
Árið 2000 hélt hann svo til Chelsea þar sem hann myndaði banvænt framherjapar með Jimmy Floyd Hasselbaink og skoraði 23 mörk ásamt því að hjálpa Hasselbaink að ná sínum 27 mörkum. Á tímabilinu 2002-2003 skoraði hann að öllum líkindum sitt frægasta mark en það var stórkostleg bakfallsspyrna gegn Leeds. Í heildina spilaði hann 182 leiki fyrir Chelsea og skoraði 54 mörk áður en hann hélt til spænska stórveldisins Barcelona.
Þar átti Eiður ágætis tíma en fékk þó kannski ekki að spila jafn mikið og hann hefði viljað. Hann átti mjög gott fyrsta tímabil en eftir það var hann ekki lengur í hópi lykilmanna liðsins. Hann afrekaði það þó að vinna frábæra þrennu með Börsungum á sínu seinasta tímabili áður en hann hélt til Monaco.
Það má segja að fátt hafi gengið upp hjá honum þar á bæ en ljóst er að hann gæti fengið tækifæri til að endurlífga feril sinn á nýjan leik nú þegar hann er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina, þar sem hann átti sinn besta tíma á ferlinum að margra mati.