29.01.10 - 21:04
Magnús Már Einarsson
Fitz Hall og Van Aanholt til Newcastle á láni (Staðfest)

Fitz Hall.

Mynd: Getty Images

Fitz Hall.

Mynd: Getty Images
Newcastle United fékk í dag varnarmennina Fiz Hall og Patrick Van Aanholt á láni.
Newcastle er á góðri leið með að endurheimta sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni en liðið þurfti liðsstyrk í vörninni þar sem að Steven Taylor, Jose Enrique og Danny Simpson eru allir frá vegna meiiðsla.
Hinn 29 ára gamli Hall kemur á láni frá QPR út þetta tímabil en hann hefur meðal annars leikið með Wigan, Crystal Palace og Southampton á ferlinum.
Hollenski vinstri bakvörðurinn van Aanholt kemur á láni frá Chelsea í einn mánuð en hann er nýbúinn að klára lánssamning hjá Coventry þar sem að hann lék 21 leik með Aroni Einari Gunnarssyni og félögum.
Bæði Hall og van Aanholt koma beint inn í leikmannahóp Newcastle fyrir leikinn gegn Leicester á morgun og sömu sögu er að segja af Mike Williamson sem kom til liðsins frá Portsmouth fyrr í vikunni.

Heimild: BBC