Fotbolti.net
29.01.10 - 14:04
Magnús Már Einarsson

Jamie O\'Hara aftur til Portsmouth á láni (Staðfest)

Jamie O\'Hara aftur til Portsmouth á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur fengið miðjumanninn Jamie O\'Hara á láni frá Tottenham út þetta tímabil.
Þessi 23 ára gamli leikmaður var á láni hjá Portsmouth fyrir áramót þar sem að hann skoraði eitt mark í 14 leikjum.

Ekki var hægt að framlengja lánssamnignum strax þar sem að Portsmouth var í félagaskiptabanni en því banni hefur núna verið aflétt.

Portsmouth er í botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og veitir ekki af liðsstyrk en liðið á í miklum fjárhagslegum vandræðum þessa dagana og gæti misst einhverja leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar.

O\'Hara mun væntanlega leika með Portsmouth gegn Manchester City á sunnudag.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.