Fotbolti.net
29.01.10 - 18:09
Magnús Már Einarsson

Halldór Orri Björnsson til Pfullendorf á láni (Staðfest)

Halldór Orri Björnsson til Pfullendorf á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar, er farinn til þýska félagsins SC Pfullendorf á láni fram í maí.
Halldór Orri æfði með Pfullendorf í haust en aðstoðarþjálfari liðsins er fyrrum landsliðsmaðurinn Helgi Kolviðsson.

Pfullendorf sýndi því áhuga að fá Halldór Orra á láni og lánssamningurinn er nú loksins klárt en óvissa hafði ríkt um það hvort að leikmaðurinn gæti komið aftur til Stjörnunnar í maí eða þyrfti að bíða fram í júlí.

Í vikunni fengu Stjörnumenn svör um að Halldór Orri megi koma til baka í maí og í dag var síðan gengið formlega frá lánssamnignum.

Halldór Orri lék vel með Stjörnunni í Pepsi-deildinni í sumar en hann skoraði sjö mörk í 21 leik með liðinu.

Hann kemur til með að styrkja lið Pfullendorf sem er í sjöunda sæti í fjórðu efstu deild í Þýskalandi en þar er liðið í Suður-riðli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.