Fotbolti.net
29.01.10 - 20:31
Magnús Már Einarsson

Martin Taylor til Watford (Staðfest)

Martin Taylor til Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Heiðar Helguson og félagar í Watford fengu liðsstyrk í dag þegar að varnarmaðurinn Martin Taylor kom frítt til félagsins frá Birmingham.
Þessi þrítugi leikmaður hefur verið hjá Birmingham í sex ár en hann kom til félagsins frá Blackburn í janúar árið 2004.

Taylor skoraði þrjú mörk í 117 leikjum með Birmingham á ferli sínum þar en hans verður þó helst minnst fyrir atvik sem átti sér stað í leik gegn Arsenal 23.febrúar árið 2008.

Taylor tæklaði þá Eduardo da Silva harkalega með þeim afleiðingum að Króatíumaðurinn fótbrotnaði mjög illa.

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vildi að Taylor yrði dæmdur í lífstíðarbann eftir atvikið. Taylor fékk þriggja leikja bann en hann hefur ekki leikið mikið með Birmingham síðan þá.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.