Fotbolti.net
29.01.10 - 17:25
Magnús Már Einarsson

Jack Wilshere til Bolton á láni (Staðfest)

Jack Wilshere til Bolton á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bolton hefur fengið miðjumanninn unga Jack Wilshere á láni frá Arsenal út þetta tímabil.
Nokkur önnur félög höfðu áhuga á Wilshere en hann fór til Bolton og verður í leikmannahópnum gegn Liverpool á morgun.

,,Jack er hæfileikaríkur, ungur og hungraður leikmaður sem á bjarta framtíð fyrir höndum,\" sagði Owen Coyle stjóri Burnley.

Nóg hefur verið að gera hjá Coyle í dag því að hann hefur einnig keypt vinstri bakvörðinn Paul Robinson frá WBA.

Robinson hefur verið á láni hjá Bolton á tímabilinu og fest sig í sessi í byrjunarliðinu en félagið hefur núna keypt hann frá WBA.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.