Fotbolti.net
29.01.25 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Man City gæti fallið úr leik í Meistaradeildinni - „Einbeittum okkur að deildinni"

Josko Gvardiol

Josko Gvardiol

Canon

Mynd: EPA

Manchester City er í óvenjulegri stöðu en liðið þarf lífsnauðsynlega á sigri að halda gegn Club Brugge í Meistaradeildinni í kvöld til að komast í umspil um sæti í 16 liða úrslitum. Ef það mistekst er liðið úr leik.
Þetta þurfa ensku liðin í lokaumferð Meistaradeildarinnar
TENGT EFNI

Þetta þurfa ensku liðin í lokaumferð Meistaradeildarinnar

Liðið hefur verið í miklu brasi á tímabilinu og eins og staðan er í dag er útlit fyrir að liðið verði ekki í titilbaráttu í úrvalsdeildinni. Josko Gvardiol er bjartsýnn fyrir leik kvöldsins.

„Við vorum fyrst um sinn ekki að hugsa um að ná í fleiri stig í Meistaradeildinni. VIð einbeittum okkur að deildinni og bikarkeppnunum. Nú erum við í þeirri stöðu og við þurfum að finna leið til að komast áfram og ég held að okkur takist það," sagði Gvardiol.

Liðið hefur verið eitt það besta í Evrópu undanfarin ár svo leikmennirnir þekkja það að spila leiki þar sem það er mikið undir.

„Það eru leikmenn sem hafa verið hérna lengi og hafa reynslu, þeir verða okkar lykilmenn. Við munum æfa vel og verðum klárir í slaginn," sagði Gvardiol.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1PSG1+53
2Bayern1+53
3Barcelona1+43
4Man Utd1+43
5Como1+33
6Stuttgart1+23
7Sporting1+23
8Man City1+23
9Aston Villa1+13
10Lens1+13
11Betis1+13
12Dortmund1+13
13Liverpool1+13
14Real Madrid1+13
15Arsenal1+13
16AEK1+13
17Roma101
18Shakhtar D101
19PSV101
20Fenerbahce101
21Villarreal1-10
22Lille1-10
23Slavia Prag1-10
24Club Brugge1-10
25Inter1-10
26Atletico Madrid1-10
27Napoli1-10
28LASK Linz1-10
29Viking FK1-20
30Galatasaray1-20
30Sparta Prag000
31Porto1-20
32RB Leipzig1-30
33Feyenoord1-40
34Sabah FK1-40
35Slovan1-50
36Bodö/Glimt1-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.