Fotbolti.net
29.02.08 - 11:50
Hörður Snævar Jónsson

KS/Leiftur fær tvo erlenda leikmenn (Staðfest)

KS/Leiftur fær tvo erlenda leikmenn (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KS/Leiftur hefur gengið frá samningum við tvo erlenda leikmenn, þetta eru þeir Milos Tanasic og Ede Visinka.
Milos Tanasic er tvítugur og kemur frá Serbíu, hann lék með Keflavík síðasta sumar og kom við sögu í einum leik í Landsbankadeildinni.

Milos lék með KS/Leiftri árið 2006 og lék þá sex leiki með liðinu í 2 deildinni en árið 2005 lék hann með KS og spilaði tvo leiki í 1 deildinni.

Milos er sonur Marko Tanasic sem þjálfaði liðið hér á árum áður.

Ede Visinka er 35 ára gamall varnarmaður og er hokinn af reynslu, Ede kemur frá Serbíu.

Hann varð bikarmeistari í Serbíu með Rauðu Stjörnunni árið 1998.

Þessir tveir leikmenn eru þeir fjórðu sem KS/Leiftur hefur fengið á síðustu þremur dögum en liðið hafði fengið þá Guðjón Gunnarsson og Hrafn Ingason að láni frá Breiðablik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.