Fotbolti.net
29.02.08 - 21:22
Eyþór Ernir Oddsson

Chris Riggott til Stoke City á láni (Staðfest)

Stoke fá mikilvægan varnarstyrk fyrir toppbaráttuna í næst efstu deildinni

Chris Riggott til Stoke City á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fréttastofa BBC staðfesti í dag að Chris Riggott varnarmaður Middlesbrough, sé genginn í raðir Stoke City í næst efstu deild að láni út tímabilið.
Riggott, sem er 27 ára gamall mun fara beint í liðið sem mætir QPR á sunnudag.

Stoke hafa staðið sig framar vonum á þessu tímabili og þessa stundina sitja þeir í efsta sæti næst efstu deildar, stigi á undan Bristol, og tvem á undan Watford sem bæði eiga leik inni.

Riggott kemur til með að styrkja vörn Stoke City til mikilla muna og mun koma til með að vera mikilvægur styrkur, enda eru Stoke í mikilli baráttu um sæti í úrvalsdeild og hafa einungis Leon Cort og Ryan Shawcross undir höndunum í miðvarðarstöðu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.