29.03.06 - 14:03
Hafliði Breiðfjörð
Allan Dyring og Peter Matzen í FH (Staðfest)

Ólafur Páll Snorrason, Allan Dyring og Tómas Leifsson í dag en Peter Matzen var ekki kominn til landsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar FH fengu góðan liðsstyrk í dag þegar tveir danskir leikmenn, Allan Dyring og Peter Matzen gengu til liðs við þá. Þá skrifuðu tveir leikmenn sem voru hjá félaginu fyrir undir nýja tveggja ára samninga við félagið en það voru þeir Ólafur Páll Snorrason og Tómas Leifsson.
Allan Dyring er framherji sem FH kaupir frá FC Fredericia í Danmörku og gerir við hann tveggja ára samnin. Þar skoraði hann 18 mörk í 49 leikjum en hann var áður hjá Vejle. Hann lék alla leiki Fredericia á fyrri hluta dönsku deildarinnar og var markahæsti leikmaður félagsins.
Peter Matzen er varnarmaður sem kemur frá Vejle í Danmörku. Hann hafði áður komið til Keflavíkur og FH á reynslu en valdi FH og gerir eins árs samning við félagið.
Ólafur Páll Snorrason gerir nýjan tveggja ára samning við FH en hann sló í gegn með liðinu síðasta sumar eftir að hafa komið til þeirra frá Fylki. Ólafur lék á hægri kantinum með FH í fyrra og lagði mikið upp og skoraði.
Tómas Leifsson gerir 2 ára framlengingu á samningi sínum við FH en hann er uppalinn hjá félaginu og einn efnilegasti leikmaður FH. Tómas var lánaður til Fjölins í fyrstu deildina á síðustu leiktíð og var lykilmaður í því liði.
FH mætir norsku 2. deildarliði í æfingaleik á föstudag klukkan 18:00 en leikið verður á Stjörnuvelli í Garðabænum. Í kjölfarið fer FH utan þar sem þeir mæta sænsku meisturunum í Djurgården í æfingaleik í Portúgal á þriðjudag.