Fotbolti.net
29.03.06 - 15:05
Hafliði Breiðfjörð

Brynjar Þór Gestsson í Val (Staðfest)

Brynjar Þór Gestsson.

Brynjar Þór Gestsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Brynjar Þór Gestsson sem hefur þjálfað Huginn á Seyðisfirði undanfarin ár er genginn í raðir Valsmanna og hefur æft með þeim upp á síðkastið. Brynjar sem er 31 árs gamall getur spilað sem miðvörður, miðjumaður eða framherji en hann spilaði með ÍBV nú undanfarna mánuði á æfingatímabilinu og spilaði allar þessar stöður þar.
Brynjar ákvað hinsvegar að vera ekki áfram í Eyjum og vildi heldur vera nær Hafnarfirðinum þar sem hann býr og ákvað því að ganga til liðs við Valsmenn en hann er vel kunnugur Willum Þór Þórssyni þjálfara Valsmanna sem þjálfaði hann er hann lék með Haukum fyrir nokkrum árum.

Brynjar hefur verið slæmur í hnjánum undanfarin ár en segist vera nokkuð góður af meiðslunum og býst við að geta tekið þátt af fullum krafti með Val í sumar og fer með þeim í æfingaferð til Tyrklands.

Brynjar Þór er uppalinn hjá FH og lék síðast með þeim árin 1997 - 2000 er hann gekk í raðir Hauka á ný. Þaðan fór hann á Seyðisfjörð og hefur verið spilandi þjálfari hjá Huginn.

Hann hafði ætlað að vera spilandi aðstoðarþjálfari hjá Haukum í haust en hætti við það og ákvað að fara á fullt í Landsbankadeildina og spila með ÍBV en þjálfari ÍBV er Guðlaugur Baldursson fyrrum liðsfélagi hans hjá FH. Brynjar fer hinsvegar nú í Val og ætlar sér að komast á fullt flug með bikarmeisturunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.