Fotbolti.net
29.03.06 - 19:03
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Stefán Örn í Keflavík (Staðfest)

Stefán Örn Arnarsson verður í Bítlabænum í sumar

Stefán Örn Arnarsson verður í Bítlabænum í sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Stefán Örn Arnarsson, sem spilaði með Keflavík á síðasta tímabili, gekk í dag liðs við Keflavíkur er hann fékk félagsskipti frá Víking Reykjavík. Stefán hefur verið að æfa með Keflavík frá því um jólin en hann æfir nú á fullu eftir meiðsli aftan í læri.
Stefán sem er 24. ára gamall sóknarmaður var hjá Keflavík á láni síðasta sumar og skoraði fjögur mörk í tólf leikjum. Hann vinnur og býr í Keflavík og hentar honum því vel að vera hjá Keflvíkingum.

Mikil barátta verður stöðu framherja í sumar en Keflavík fékk til sín fyrr í vetur heimamennina Magnús Sverrir Þorsteinsson frá Grindavík og bjargvættinn Þórarinn Kristjánsson. Einnig hafa Keflvíkingar innanborðs Færeyinginn Símun Samuelsson sem hefur spilað mjög vel í undanförnum leikjum, hinn unga og efnilega Davíð Hallgrímsson og síðast en síst fyrirliðann Guðmund Steinarsson.

Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, býst þó ekki við því að Hörður Sveinsson komi til baka í sumar en hann er í láni hjá Silkeborg í Danmörku og hefur byrjað frábærlega með liðinu og skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjunum í dönsku úrvalsdeildinni.

Aðspurður um hvort fleiri leikmenn væru væntanlegir til liðsins vildi Kristján ekki útiloka það og sagði í léttum tón að hann væri að fylgjast með öllu sem hreyfist á leikmannamarkaðnum. Það er því víst að það verður spennandi að fylgjast með ungu liði Keflvíkinga á komandi sumri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.