29.03.08 - 10:15
Magnús Már Einarsson
Hallgrímur Jóhannsson í Árborg (Staðfest)

Hallgrímur í leik með Selfyssingum.

Mynd: Guðmundur Karl

Hallgrímur í leik með Selfyssingum.

Mynd: Guðmundur Karl
Selfyssingar hafa lánað miðjumanninn öfluga Hallgrím Jóhannsson til Árborgar út keppnistímabilið.
Hallgrímur er 29 ára gamall og á að baki 242 meistaraflokksleiki með Selfoss og Ægi en öll sín þrettán meistaraflokksár hefur hann leikið í 2. deildinni.
Hallgrímur er orðinn löglegur með Árborg og leikur sinn fyrsta leik með félaginu í dag þegar liðið mætir Afríku í Lengjubikarnum.
,,Hallgrímur er gríðarlegur liðsstyrkur og mun styrkja okkur mikið á miðsvæðinu," sagði Adolf Bragason, þjálfari Árborgar.
,,Hann byrjaði að leika í meistaraflokki 16 ára og reynsla hans speglast í því að hann á tæplega 250 meistaraflokksleiki, aðeins 29 ára gamall. Leikmaður með svona mikla leikreynslu mun nýtast Árborgarliðinu á mörgum sviðum."