Fotbolti.net
29.03.08 - 11:28
Magnús Már Einarsson

Helgi Pétur í KB (Staðfest)

Helgi Pétur fagnar marki með Leikni síðastliðið sumar.

Helgi Pétur fagnar marki með Leikni síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KB hefur fengið miðju og sóknarmanninn Helga Pétur Jóhannsson á láni frá Leikni.
KB er varalið Leiknis og leikur í 3.deildinni en Helgi Pétur kemur til liðsins á láni.

Helgi Pétur hefur leikið flesta leiki Leiknis undanfarin ár að undanskildu árinu 2006 þegar hann lék með Stjörnunni.

Síðastliðið sumar skoraði Helgi Pétur fjögur mörk í tuttugu leikjum með Leikni í fyrstu deildinni.

Undanfarið hafa fjórir aðrir leikmenn sem léku með Leikni í fyrra skipt yfir í KB en það eru þeir Freyr Alexandersson, Gunnar Jarl Jónsson, Kristján Páll Jónsson og Sigurður Kr. Nikulásson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.