29.04.05 - 14:12
Elvar Geir Magnússon
Svavar Sigurðsson til Hauka (Staðfest)


Mynd: Merki


Mynd: Merki
Varnarmaðurinn Svavar Sigurðsson fær leikheimild með Haukum á morgun. Svavar er fæddur 1983 og kemur frá öðru Hafnarfjarðarliði, Íslandsmeisturum FH. Svavar er fæddur árið 1983 og lék á lánssamningi hjá Völsungi á Húsavík á síðasta tímabili og spilaði 16 af 18 leikjum liðsins í deildarkeppninni.
Haukar eru í 1.deild en þeir hafa misst marga lykilmenn frá því síðasta sumar og margir sem spá því að þeir muni eiga erfitt uppdráttar í deildinni í sumar. Það er þó ljóst að fínn liðsstyrkur er í Svavari.
Svavar var til reynslu hjá Keflavík fyrr í þessum mánuði.
Svavar var til reynslu hjá Keflavík fyrr í þessum mánuði.
