Fotbolti.net
29.04.08 - 14:13
Magnús Már Einarsson

Gísli Freyr til Víkings Ó. á láni frá ÍA (Staðfest)

Gísli Freyr til Víkings Ó. á láni frá ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Ólafsvík hefur fengið framherjann Gísla Frey Brynjarsson á láni frá ÍA.
Gísli Freyr lék sex leiki með Skagamönnum síðastliðið sumar, þar af fimm þeirra í Landsbankadeildinni þar sem hann skoraði eitt mark.

Þessi nítján ára gamli leikmaður gekk upp úr öðrum flokki síðastliðið haust en hann hefur verið á mála hjá ÍA undanfarin tvö ár.

Áður lék hann með Sindra þar sem hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki ungur að árum.

Gísli er þriðji framherjinn sem Víkingur fær í vetur en áður hafði Alfreð Elías Jóhannsson komið til liðsins frá Njarðvík og Eyþór Guðnason frá HK.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.