Fotbolti.net
29.04.10 - 15:06
Magnús Már Einarsson

Pétur Runólfsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Pétur Runólfsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

BÍ/Bolungarvík, sem leikur í annarri deild, hefur fengið Pétur Runólfsson á láni frá ÍBV.
Pétur ætlaði að leggja skóna á hilluna í vetur en hann hætti síðan við og æfði með FH á dögunum áður en hann gekk í raðir BÍ/Bolungarvíkur í dag.

Þessi 28 ára gamli leikmaður er uppalinn á Bolungarvík og hann lék áður með Bolungarvík og KÍB áður en hann gekk til liðs við ÍBV fyrir tíu árum síðan.

Pétur hefur verið fastamaður hjá Eyjamönnum undanfarin ár en hann hefur leikið bæði á miðjunni og í stöðu hægri bakvarðar.

Síðastliðið sumar spilaði hann nítján leiki með Eyjamönnum í Pepsi-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.