Fotbolti.net
29.04.25 - 11:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

KR fær efnilegan leikmann frá Fram (Staðfest)

KR fær efnilegan leikmann frá Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR hefur fengið ungan og efnilegan leikmann frá Fram en sá heitir Marinó Leví Ottósson og er fæddur árið 2011.

Marinó hefur spilað með þriðja flokki Fram og þykir mikið efni. Kristall Máni Ingason, frændi Marinós, sagði hann efnilegasta leikmann landsins þegar hann svaraði spurningum í hinni hliðinni fyrir fimm árum siðan.

Hann hefur í vetur verið valinn í hópa sem taka þátt í hæfileikamótun KSÍ.
Hin hliðin - Kristall Ingason (FC Kaupmannahöfn)
TENGT EFNI

Hin hliðin - Kristall Ingason (FC Kaupmannahöfn)

Óskar Hrafn Þorvaldsson, yfirmaður fótboltamála og þjálfari KR, hefur mikið verið að gefa ungum og efnilegum leikmönnum tækifæri í meistaraflokki KR. Marinó er eins og fyrr segir fæddur árið 2011 og á því framtíðina fyrir sér.

Hann er fjölhæfur leikmaður, hefur mest spilað á kantinum en getur einnig spilað á miðjunni og í fremstu línu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.