Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 20:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óliver Elís til ÍR á láni (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óliver Elís Hlynsson er genginn til liðs við ÍR á láni frá Fram út tímabilið.

Óliver er uppalinn ÍR-ingur fæddur árið 2004. Hann gekk til liðs við. Fram veturinn 2024. Hann spilaði á láni hjá ÍR seinni hlutann á síðasta tímabili.

„Það er hellingur sem Óliver kemur með inn í liðið sem mun nýtast okkur innan sem utan vallar," segir í tilkynningu frá ÍR.

Hann spilaði þrjá leiki fyrir Fram síðasta sumar áður en hann fór til ÍR þar sem hann spilaði átta leiki og skoraði eitt mark í Lengjudeildinni.

ÍR missti af umspilssæti síðasta sumar og hafnaði í 6. sæti Lengjudeildarinnar. Liðið hóf keppni af miklum krafti í sumar og vann Aftureldingu 7-4 í Mosó í fyrstu umferð deildarinnar um síðustu helgi.


Slapp
banner
banner
banner