29.05.08 - 15:06
Magnús Már Einarsson
Patrik Berger til Sparta Prag (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tékkneski miðjumaðurinn Patrik Berger hefur gert tveggja ára samning við Spörtu Prag í heimalandi sínu.
Berger hóf ferilinn hjá Sparta Prag en þessi 34 ára gamli leikmaður fór til nágrannanna í Slavia Prag árið 1991.
Hann fór síðan til Borussia Dortmund árið 1995 og eftir góða frammistöðu á EM ári síðar fór hann til Liverpool.
Portsmouth fékk Berger til liðs við sig árið 2003 og fyrir þremur árum gekk hann síðan til liðs við Aston Villa.
Á landsliðsferli sínum lék Berger 44 leiki með Tékkum og skoraði 18 mörk.

Heimild: Heimasíða UEFA