Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   fim 29. maí 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ólöf Sara í ÍR (Staðfest)
Kvenaboltinn
Mynd: ÍR
Ólöf Sara Sigurðardóttir er gengin til liðs við ÍR frá Álftanesi.

Ólöf er fædd árið 2004 og er uppalin í Stjörnunni. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Álftanesi árið 2021.

Hún átti stórkostlegt tímabil með Álftanesi sumarið 2023 þar sem hún lék 12 leiki í 2. deild og skoraði tíu mörk. Hún hefur alls leikið 48 leiki og skorað 13 mörk.

Hún mun áfram spila í 2. deild en nú með ÍR þar sem liðið er án stiga eftir tvo leiki. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Fjölni á laugardaginn.



Athugasemdir
banner
banner