Góðan og gleðilegan föstudag. Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar verður á morgun þegar PSG og Arsenal mætast klukkan 16:00.
Barcelona er að velta því fyrir sér að reyna við ekvadorska varnarmanninn Piero Hincapie (24) hjá Arsenal. (Mail)
Rúben Dias (29), portúgalski varnarmaðurinn hjá Manchester City hefur beðið umboðsmann sinn um að kanna möguleika sína utan Englands. Paris St-Germain, Bayern München og Real Madrid eru öll að skoða stöðuna. (Caught Offside)
Liverpool reynir að ná samkomulagi um Yan Diomande (19) hjá RB Leipzig sem fyrst. Paris St-Germain og Manchester City fylgjast með gangi mála varðandi kantmanninn unga en hann er frá Fílabeinsströndinni. (Florian Plettenberg)
Crystal Palace vill sannfæra enska miðjumanninn Adam Wharton (22) og japanska miðjumanninn Daichi Kamada (29) um að vera áfram hjá félaginu í kjölfar sigursins í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar. (Sky Sports)
Manchester United og Chelsea eru meðal félaga sem íhuga að gera tilboð í Alex Scott (22), miðjumann Bournemouth, í sumar. (Teamtalk)
Þýski sóknarmaðurinn Niclas Fullkrug (33) vill yfirgefa West Ham eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni. Werder Bremen í Þýskalandi er meðal félaga sem hafa áhuga. (Sky)
Portúgalska félagið Sporting í Lissabon vill fá portúgalska miðjumanninn Joao Palhinha (30) aftur þegar lánssamningur hans hjá Tottenham frá Bayern München lýkur. (A Bola)
Leeds United vill fá bandaríska miðjumanninn Tanner Tessmann (24) frá Lyon. Það stefnir í annasaman sumarglugga hjá Leeds. (Football Insider)
Manchester City skoðar möguleika sína ef brasilíski kantmaðurinn Savinho (22) yfirgefur félagið en hann er skotmark Tottenham. (Fabrizio Romano)
Mauricio Pochettino (54), landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, hefur fundað með AC Milan. Argentínumaðurinn er að búa bandaríska liðið undir HM en samningur hans rennur út eftir mótið. (BBC)



