Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 15:35
Kári Snorrason
Mourinho búinn að skrifa undir samning við Real Madrid - Kynntur eftir kosningar
Skrifaði undir þriggja ára samning við Real Madrid.
Skrifaði undir þriggja ára samning við Real Madrid.
Mynd: EPA
Jose Mourinho er búinn að skrifa undir þriggja ára samning um að taka við sem nýr stjóri Real Madrid. BBC greinir frá.

Hann verður þó ekki kynntur formlega fyrr en eftir forsetakosningar félagsins 7. júní. Kosningarnar eru þær fyrstu í 20 ár en Florentino Perez fær mótframboð frá athafnamanninum Enrique Riquelme.

Mourinho yfirgefur Benfica, þar sem hann tók við í september og stýrði hann liðinu í þriðja sæti portúgölsku úrvalsdeildarinnar.

Þá tapaði hann gegn Real Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem var mikill hiti og Gianluca Prestianni fékk langt bann vegna hómófóbískra ummæla í garð Vinicius Junior.

Mourinho var við stjórnvölinn hjá Real Madrid frá 2010 til 2013 og vann þá spænsku deildina, bikarinn og spænska ofurbikarinn.

Hann tekur við af Alvaro Arbeloa, sem tók við liðinu í janúar eftir að Xabi Alonso var látinn taka poka sinn.
Slapp
banner
banner
banner