Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 12:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Trippier fer til Úlfanna
Mynd: EPA
Kieran Trippier hefur náð samkomulagi við Wolves og er við það að ganga í raðir félagsins.

Samningur hans við Newcastle var að renna út og verður hann leikmaður Úlfanna ef hann stenst læknisskoðun.

Trippier er 35 ára hægri bakvörður sem mun skrifa undir tveggja ára samning með möguleika á þriðja árinu.

Hann var í rúm fjögur ár hjá Newcastle og varð deildabikarmeistari með liðinu í fyrra. Hann kom frá Atletico Madrid, hann skoraði fjögur mörk í 160 leikjum fyrir Newcastle og lagði upp 29. Á liðnu tímabili kom hann við sögu í 37 leikjum í öllum keppnum, þar af 21 í úrvalsdeildinni og níu í Meistaradeildinni.

Nokkur félög á meginlandinu vildu fá þennan fyrrum enska landsliðsmann en hann ákvað að semja við Wolves.
Slapp
banner
banner