Þýska úrvalsdeildarfélagið RB Leipzig hefur engan áhuga á að selja hinn 19 ára gamla Yan Diomande í sumar þrátt fyrir mikinn áhuga frá stærstu félögum Evrópu.
Liverpool hefur sett Fílabeinsstrendinginn ofarlega á óskalista sinn og PSG er einnig sagt fylgjast grannt með stöðu hans. Liverpool vill fá hann til að fylla í skarð Mohamed Salah.
Liverpool hefur sett Fílabeinsstrendinginn ofarlega á óskalista sinn og PSG er einnig sagt fylgjast grannt með stöðu hans. Liverpool vill fá hann til að fylla í skarð Mohamed Salah.
Samkvæmt fréttum ytra eru forráðamenn Leipzig þó staðráðnir í að halda kantmanninum eftir að félagið tryggði sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Oliver Mintzlaff, framkvæmdastjóri Leipzig, tók skýrt til orða nýlega.
„Ég myndi ekki selja þennan unga leikmann, sama hvert verðið er. Hann hefur ekki einu sinni klárað heilt tímabil hjá okkur enn,“ sagði Mintzlaff við Sky í Þýskalandi.
Diomande átti frábært tímabil með Leipzig þar sem hann skoraði 13 mörk og lagði upp tíu til viðbótar í öllum keppnum. Hann var jafnframt valinn nýliði ársins í Bundesligunni.
Leipzig er einnig sagt vinna að því að framlengja samning hans enn frekar, þrátt fyrir að núverandi samningur gildi til ársins 2030.
Framtíð leikmannsins flækist þó einnig af lagalegu deilumáli varðandi umboðsmál hans sem nú er komið til Alþjóðlega íþróttadómstólsins, en það gæti haft áhrif á það hvort hann skipti um félag í sumar eða ekki.
Á meðan heldur áhugi stórliðanna áfram, en það virðist ætla að reynast flókið fyrir Liverpool að sækja einn heitasta unga framherja Evrópu frá Leipzig í sumar.

