29.06.07 - 11:07
Magnús Már Einarsson
Eiki feiti í Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Risaslagur verður á Fjölnisvelli í kvöld. Topplið Grindavíkur kemur í heimsókn til Fjölnis í Grafarvogi. Bæði þessi lið eru talin líkleg til að berjast um sæti í úrvalsdeildinni í sumar.
Fjölnir leggur mikið í umgjörð leiksins og má sem dæmi nefna að Eiki feiti er genginn til liðs við Fjölni.
Hann mætir með risagrill eitt mikið og mun grilla hamborgara í gríðamiklu magni. Borgarinn verður á góðu verði. Eiki er Valsari að upplagi en leyfir sér líka að vera Fjölnismaður.
Þá hefur verið komið upp hoppukastala fyrir þá sem ekki hafa fullkomið úthald í 90 mínútna leik sökum aldurs.
Búist er við fjölmenni á völlinn og er fólk hvatt til að koma snemma og gefa sér tíma í úrvals hamborgara frá Eika feita. Leikurinn hefst klukkan 20.