29.06.07 - 12:49
Magnús Már Einarsson
Stjarnan fær miðjumann frá Belgíu (Staðfest)

Úr leik hjá Stjörnunni.

Mynd: Guðmundur Karl

Úr leik hjá Stjörnunni.

Mynd: Guðmundur Karl
Stjarnan hefur fengið framliggjandi miðjumann frá Belgíu að nafni Mustafa Kalkan en þessi 24 ára gamli leikmaður hefur meðal annars leikið með Genk.
Lárus Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar hefur góð sambönd í Belgíu og hefur hann nú fengið Kalkan sem hefur leikið í annarri deild þar í landi undanfarin ár.
Hann var á samning hjá Genk tímabilið 2003/2004 en nú er hann kominn til Stjörnunnar þar sem hann verður út tímabilið.
Kalkan náði ekki að fá leikheimild í tæka tíð fyrir leik Stjörnunnar og Leiknis í kvöld en hann verður löglegur fyrir leik Garðbæinga gegn KA á mánudaginn.