Fotbolti.net
29.06.07 - 17:53
Hafliði Breiðfjörð

Duncan Stewart til ÍH (Staðfest)

Úr nágrannaslag ÍH og Hauka í fyrstu umferð 2. deildar.

Úr nágrannaslag ÍH og Hauka í fyrstu umferð 2. deildar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

2. deildarlið ÍH fékk góðan liðsstyrk í dag þegar Duncan Stewart gekk til liðs við félagið. Stewart er 23 ára gamall miðvallarleikmaður sem hefur leikið með Dunfermline í Skotlandi.
Hann á að baki 6 leiki með skoska félaginu en hefur nú ákveðið að reyna sig á Íslandi.

Hann kynntist þeim Baldri Bett sem leikur með Val og Calum Bett bróður hans sem leikur með HK er þeir voru í Skotlandi og kemur hingað til lands fyrir tilstilli þeirra.

Hann mun verða löglegur með liði ÍH er það mætir Völsungi klukkan 14:00 á morgun en leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.