29.06.07 - 18:38
Stefán Guðberg Sigurjónsson
David Rozehnal til Newcastle (Staðfest)

David Rozenhal er kominn til Newcastle

Mynd: Getty Images

David Rozenhal er kominn til Newcastle

Mynd: Getty Images
Sam Allardyce og félagar í Newcastle United hafa gengið frá kaupunum á tékkneska landsliðsmanninum David Rozenhal frá Paris St. Germain og er verðmiðinn 2,9 milljónir punda.
Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning á St. James Park og er hann þriðju kaup Allardyce í sumar en áður hafði hann fengið miðjumanninn Joey Barton og sóknarmanninn Mark Viduka til liðs við sig.
Þá gæti Newcastle þurft að borga 200 þúsund pund í viðbót fyrir leikmanninn en það fer eftir hversu marga leiki hann spilar fyrir félagið.
Rozenhal, sem hefur spilað 34 landsleiki fyrir Tékkland, byrjaði ferilinn hjá Sigma Olomouc í heimalandinu og vann belgíska titilinn tvisvar með Club Brugge áður en hann fór til PSG árið 2005.
Það má búast við því að Rozenhal sé ekki eini varnarmaðurinn sem Allardyce fær til Newcastle í sumar eftir að þeir losuðu sig við Titus Bramble, Craig Moore, Oguchi Onyewi og bakvörðinn Oliver Bernard.

Heimild: BBC