Fotbolti.net
29.06.08 - 08:07
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Nicolae Dica til Catania (Staðfest)

Nicolae Dica í leik gegn Arsenal í Meistaradeildinni

Nicolae Dica í leik gegn Arsenal í Meistaradeildinni

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska Seríu A félagið Catania hafa fest kaup á rúmenska framherjanum Nicolea Dica, sem lék með Steaua Bucharest.
Dica, sem er 28 ára gamall samdi við félagið til fjögurra ára, eftir að hafa komist að samkomulagið við félagið og eftir að hafa staðist læknisskoðun.

Hann mun fylla stöðu Juan Manuel Vargas, sem er talinn vera á leið til Fiorentina á næstu dögum.

Dica skoraði 68 mörk í 169 leikjum fyrir Steaua Bucharest og var í byrjunarliði Rúmeníu á Evrópumótinu í sumar, en stóðst ekki væntingar frekar enn liðsfélagar hans í landsliðinu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.