Fotbolti.net
29.06.08 - 08:07
Brynjar Ingi Erluson

Javier Angel Balboa til Benfica (Staðfest)

Balboa í leik með Real Madrid

Balboa í leik með Real Madrid

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalska stórliðið Benfica hafa fest kaup á Javier Angel Balboa leikmanni Real Madrid á Spáni, en hann var ekki nægilega ánægður með fá tækifæri sín hjá Madrídingum.
Balboa, sem er 23 ára gamall kantmaður semur við Benfica til þriggja ára, en hann var ekki partur af plönum Berndt Schuster, þjálfara Real Madrid.

Balboa er frá Equatorial Gíneu í Afríku og spilaði sinn fyrsta leik fyrir Real Madrid á tímabilinu 2005/06, en síðan fór hann á láni til Racing Santander aðeins mánuð síðar.

Hann spilaði aðeins 10 leiki fyrir Real í vetur, og fer til Benfica til að öðlast fleiri tækifæri hjá þeim en spænsku meisturunum.

,,Ég hlakka til þess að taka á þessari mikilvægu keppni og var það eiginlega þjálfaranum Quique Sanchez Florez að þakka að ég fór til Benfica, en hann hefur gífurlegt traust á mér,\" sagði Balboa.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.