Fotbolti.net
29.06.09 - 17:08
Magnús Már Einarsson

Lars Jacobsen til Blackburn (Staðfest)

Lars Jacobsen til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur fengið danska varnarmanninn Lars Jacobsen til liðs við sig frá Everton.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir tveggja ára samning við Blackburn.

Jacobsen lék einungis fjóra leiki með Everton á síðustu leiktíð en hjá Blackburn mun hann fá það hlutverk að fylla skarð Andre Ooijer og Danny Simpson.

Ooijer fór fyrr í sumar til PSV Eindhoven en Simpson var í láni frá Manchester United á síðustu leiktíð.

Jacobsen er þriðji leikmaðurinn sem Blackburn fær í sumar en áður hafði félagið krækt í Elrio van Heerden og Gael Givet.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.