Fotbolti.net
29.06.11 - 10:24
Magnús Már Einarsson

David de Gea til Manchester United (Staðfest)

David De Gea.

David De Gea.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur gengið frá kaupum á David de Gea markverði Atletico Madrid.

Þessi tvítugi Spánverji fór í læknisskoðun hjá United í gær og mun skrifa undir fimm ára samning við félagið.
,,Ég er mjög stoltur og ég get ekki beðið eftir að byrja að spila hér,\" sagði De Gea við MUTV.

,,Þegar félag af sömu stærðargráðu og Manchester United vill fá þig þá ertu mjög glaður. Ég vil gera mitt besta og sýna hvað ég get gert.\"

Talið er að De Gea kosti 18,9 milljónir punda en hann er þar með næstdýrasti markvörður heims frá upphafi á eftir Gianluigi Buffon sem fór til Juventus á 32,6 milljónir punda árið 2001.

De Gea er þriðji leikmaðurinn sem kemur til Manchester United í sumar en félagið hafði áður keypt Ashley Young frá Aston Villa og Phil Jones frá Blackburn.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.