29.06.11 - 14:27
Hörður Snævar Jónsson
Connor Wickham til Sunderland (Staðfest)

Wickham í baráttu við Guðlaug Victor.

Mynd: Getty Images

Wickham í baráttu við Guðlaug Victor.

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Connor Wickham frá Ipswich.
Þessi 18 ára gamli framherji hefur verið eftirsóttur en Arsenal, Liverpool og Tottenham höfðu líka áhuga á honum.
Kaupverðið er talið geta orðið allt að 12 milljónir punda.
,,Mörg stór félög vildu fá Connor svo við erum mjög sáttir með að hann ákvað að koma til Sunderland,\" sagði Steve Bruce stjóri liðsins.
,,Hann er mjög ungur en sterkur líkamlega, með hæð hans og leikstíl þá er hann hættulegur fyrir framan markið.\"
,,Við höfum fylgst með honum um hríð og hann er að bæta sig og þróast mikið. Hann er mikið efni og ég er viss um að stuðningsmennirnir eiga eftir að elska að sjá hann spila
Hann var valinn besti ungi leikmaðurinn í Championship deildinni en hann lék sinn fyrsta leik fyrir Ipswich 16 ára og ellefu daga gamall.

Heimild: Sky