Fotbolti.net
29.06.11 - 18:12
Alexander Freyr Tamimi

Jóhannes Karl og Vanda hætt með Breiðablik (Staðfest)

Jóhannes Karl er hættur með Blikastúlkur.

Jóhannes Karl er hættur með Blikastúlkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Jóhannes Karl Sigursteinsson þjálfari Breiðabliks er hættur störfum hjá félaginu og sömuleiðis Vanda Sigurgeirsdóttir, aðstoðarkona hans. Gengi Breiðabliks hefur ekki verið sérlega gott í sumar og koma þessar fregnir því ekki á óvart.
Breiðablik hefur verið í titilbaráttunni undanfarin ár en situr nú í sjöunda sæti deildarinnar með einungis sjö stig, tólf stigum á eftir toppliði Vals. Það virðist einfaldlega sem brotthvarf Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hafi reynst of stórt skarð fyrir liðið til að fylla.

Knattspyrnudeild Breiðabliks mun tilkynna um nýjan þjálfara á næstunni samkvæmt yfirlýsingu sem félagið gaf frá sér í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.