ÍBV hefur landað unglingalandsliðsmanninum Þorra Heiðari Bergmann frá Víkingi R.
Þorri Heiðar er 18 ára gamall sóknarmaður sem er uppalinn hjá Víkingum.
Hann var ekki samningsbundinn Víkingum og gátu því Eyjamenn samið við hann strax og er kominn með leikheimild og má því spila gegn Fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag.
Eyjamenn hafa verið heldur óheppnir með meiðsli sóknarmanna í byrjun tímabils. Oliver Heiðarsson verður frá næstu vikur og þá sleit Omar Sowe krossband.
Þorri er mikið efni og hefur meðal annars spilað 11 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað eitt mark.
Athugasemdir