29.07.06 - 15:00
Hafliði Breiðfjörð
Indriði Sigurðsson í KR (Staðfest)

Indriði Sigurðsson er kominn í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Indriði Sigurðsson er kominn í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Indriði Sigurðsson landsliðsmaður Íslands er genginn til liðs við sitt gamla félag, KR á ný. Samningur hans við Genk í Belgíu rann út nú í sumar og hann náði ekki að vinna sér inn samning hjá Southampton og Ipswich á Englandi sem hann æfði með á reynslu fyrr í mánuðinum.
Frá þessu er greint á vefsíðu stuðningsmanna KR, KRReykjavik.is nú í dag. Ekki kemur fram hversu langan samning hann gerir við KR en stefnt er að því að hann fái leikheimild sem fyrst svo hann geti spilað leikinn gegn Fylki á mánudag. KR-ingar verða án Bjarnólfs Lárussonar og Mario Cižmek í þeim leik og því koma Indriða kærkomin.
Indriði getur leikið sem varnarmaður, miðjumaður eða kantmaður. Hann hóf feril sinn hjá KR en fór í atvinnumennsku hjá Lilleström í Noregi árið 1999. Þaðan fór hann til Genk 2003 og er nú kominn í KR á ný. Hann er 25 ára gamall og hefur átt fast sæti í landsliði Íslands undanfarin ár þar sem hann hefur leikið 25 leiki og skorað eitt mark.

Heimild: KRReykjavik.is