Fotbolti.net
29.07.07 - 06:00
Sindri Þór Þorgeirsson

Ramos til PSV (Staðfest)

PSV fá liðstyrk fyrir komandi tímabil

PSV fá liðstyrk fyrir komandi tímabil

Canon

Mynd: Getty Images

PSV Eindhoven hafa gengið frá kaupunum á brasilíska markmanninum Cassio Ramos frá Gremio í heimalandi hans.
PSV borguðu Gremio 1,5 milljónir punda fyrir Ramos sem var meðal annars eftirsóttur af Benfica eftir að hafa staðið sig vel með brasilíska U-21 árs landsliðinu á HM sem fram fór í Kanada.

Njósnari PSV, Piet de Visser hafði þetta að segja um Ramos: ,, Hann er mjög góður í loftinu og er líka mjög snöggur.”

,, Spyrnurnar hans eru frábærar en köstin hans eru enn betri og þjálfari Brasilíu, Dunga hefur einu sinni valið hann í landsliðshóp sinn,” bætti de Visser við að lokum.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.