Fotbolti.net
29.07.07 - 07:33
Magnús Már Einarsson

Víkingur Ólafsvík fær Slóvena og Króata (Staðfest)

Josip Marosevic og Peter Ferme.

Josip Marosevic og Peter Ferme.

Canon

Mynd: Alfons Finnsson

Víkingur Ólafsvík hefur fengið tvo nýja leikmenn fyrir lokabaráttuna í 1.deild karla en aftur á móti munu þrír leikmenn fara frá liðinu til náms erlendis í næsta mánuði.
Ellert Hreinsson, Birgir Hrafn Birgisson og Jón Pétur Pétursson eru allir á leið til náms og því fengu Víkingar til liðs við sig tvo nýja leikmenn.

Um er að ræða Josip Marosevic tvítugan sóknarmann frá Króatíu en hann lék síðast í 2.deild í heimalandi sínu.

Josip lék sinn fyrsta leik með Víkingi þegar að liðið lagði Þór í fyrstu deildinni í gær. Josip lék síðasta hálftímann og var sprækur en hann jafnaði 1-1 á 84.mínútu með frábæru skoti.

Hinn leikmaðurinn sem Víkingar hafa fengið er Peter Ferme sem er 21 árs örfættur varnarmaður frá Slóveníu. Hann ætti að geta leikið sinn fyrsta leik á miðvikudag þegar að Víkingar mæta Njarðvík.

Heimild: Heimasíða Víkings

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.