Fotbolti.net
29.07.07 - 11:04
Hafliði Breiðfjörð

Santa Cruz til Blackburn (Staðfest)

Roque Santa Cruz.

Roque Santa Cruz.

Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn Rovers hafa gengið frá kaupum á Roque Santa Cruz frá bayern Munchen en leikmaðurinn hefur gert fjögurra ára samning við félagið eftir að samkomulag náðist um kaupverð sem er talið vera 3,5 milljónir punda.
,,Hann er ungur leikmaður, landsliðsmaður með gott orð á sér," sagði Mark Hughes stjóri Blackkburn um þennan 25 ára gamla leikmann. ,,Það góða sem við sáum er að hann er í góðu formi enda hefur hann verið að spila með Paragvæ á Copa America."

Santa Cruz hefur fallið niður goggunarröðina hjá Bayern í kjölfar þess að framherjarnir Miroslav Klose og Luca Toni komu í sumar. Á meðan hann var hjá Bayern vann hann Meistaradeildina, fimm Bundesligu titla, fjóra bikartitla og heimsmeistarakeppni félagsliða.

Hann skoraði 31 mark í 155 leikjum fyrir félagið og lék 51 leik í Meistaradeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.